Hjörleifur Guttormsson segir sig úr VG

Hjörleifur Guttormsson
Hjörleifur Guttormsson mbl.is

Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, sagði sig úr Vinstri hreyfingunni grænu framboði í kvöld. Hjörleifur er einn stofnfélaga flokksins fyrir 14 árum. Í kveðjuræðu á flokksráðsfundi VG í kvöld sagði hann flokkinn hafa vikið af leið og gagnrýndi forrustuna harðlega.

Hjörleifur sagði vegferð flokksins hafa gengið vel framan af og félagsmenn hafa lagt mikið á sig við að byggja undir stefnuna og bæta við nýjum stoðum. Minnti hann í því samhengi á Græna framtíð vorið 2007 og Hafið, bláa hafið 2009. Hann sagði endurreisn efnahagslífsins sömuleiðis hafa gengið að ýmsu leyti vonum framar í ríkisstjórnartíð VG eftir hrun.

Valdboð og brotin loforð

„Gjörbreyting hefur hins vegar orðið á störfum flokksins til hins verra,“ sagði Hjörleifur. Sagði hann starfið að mestu takmarkast við að uppfylla lágmarks formkröfur. Ágreiningi hafi verið ýtt til hliðar með valdboði og ítrekað brotið gegn yfirlýstri stefnu og kosningaloforðum.

„Afleiðingarnar blasa við okkur. Þingmenn hafa gengið úr flokknum eða hætt störfum og fjöldi óbreyttra félagsmanna. Í þessum hópi er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forystukraftur í fremstu röð, og nú nýverið Anna Ólafsdóttir Björnsson, fyrrverandi þingkona Kvennalistans,“ sagði Hjörleifur þegar hann ávarpaði flokkssystkin sín í kvöld.

Ákvörðun um aðildarumsókn óverjandi og siðlaus

„Ég ætla ekki að  þreyta ykkur á langri upptalningu á hrapalegum mistökum og óverjandi ákvörðunum síðustu fjögur ár. Nú í ársbyrjun sendi ég þingflokki VG bréf og gerði að umtalsefni vinnubrögðin við aðildarumsókn að ESB og ákvarðanir um úthlutun sérleyfa til olíuvinnslu á Drekasvæði. Að vanda komu engin viðbrögð. En þau eru reyndar fleiri stóru málin sem hrúgast hafa upp, nú síðast vinnubrögðin í stjórnarskrármálinu,“ sagði Hjörleifur.

Ákvörðunin um aðildarumsókn að Evrópusambandið er þó stærst að hans mati. „Það er göróttasti kokteill sem blandaður hefur verið um langt skeið, óverjandi, siðlaus og eitraður fyrir flokkinn.“ Hjörleifur sagði ómerkilegast að láta líta svo út sem verið væri að sækja um ESB-aðild „til að þjóðin gæti tekið ákvörðun um málið“. Hér var ekki verið að sækja um aðild þjóðarinnar vegna, heldur til þess eins að halda ríkisstjórninni á lífi.“

Þurfti ekki að þróast svona

Hjörleifur sagði ákvörðun Steingríms J. Sigfússonar um stuðning við leitar- og olíuvinnsluleyfi með möguleika um framlengingu til 30 ára vera í hrópandi mótsögn við umhverfissjónarmið flokksins og hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar í auðlindanýtingu.

„Góðir fundarmenn. Svona þurfti þetta ekki að þróast, ef allt hefði verið með felldu. Því miður sé  ég þess engin merki að Eyjólfur hressist. Þvert á móti er siglt hraðbyri upp í fjöru, með sömu áhöfn við stýri, forystu sem komið hefur flokknum í þessa dapurlegu stöðu. Ég kveð Vinstrihreyfinguna – grænt framboð, hér og nú, með blendnum tilfinningum, reynslunni ríkari, og þakka um leið mörgum ykkar fyrir langa og um margt ánægjulega samfylgd. Lifið heil.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert