Samskip boða nýja siglingaleið

Helgafellið hlaðið varningi.
Helgafellið hlaðið varningi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þáttaskil verða í sjóflutningum til og frá Íslandi með nýrri siglingaleið, að sögn Samskipa, sem hyggjast sigla frá Vestfjörðum og Norðurlandi beint til Bretlands og meginlands Evrópu. Siglingar hefjast frá og með 18. mars.

Flutningaskip á vegum félagsins fer þá frá Reykjavík til Ísafjarðar, Akureyrar og Reyðarfjarðar og þaðan til Immingham í Bretlandi og Rotterdam í Hollandi með viðkomu í Kollafirði í Færeyjum. Frá Rotterdam heldur skipið heim á leið, kemur til Reykjavíkur sunnudaginn 31. mars og leggur af stað í nýja hringferð daginn eftir, 1. apríl. Viðkomustöðum verður hugsanlega fjölgað í framtíðinni, að sögn Samskipa.

Álagið á vegakerfið minnkar

„Við höfum fundið fyrir mikilli þörf á beinum siglingum frá Vestfjörðum og Norðurlandi, m.a. á sjávarafurðum inn á helstu markaði í Bretlandi og á meginlandi Evrópu. Við grípum nú tækifærið og endurskipuleggjum leiðakerfi okkar. Með þessum breytingum komum við til móts við óskir og þarfir viðskiptavina félagsins,“ er haft eftr Ásbirni Gíslasyni, forstjóri Samskipa.

Hin nýja siglingaleið býður að mati Samskipa upp á nýja og áhugaverða kosti fyrir íslenska og erlenda viðskiptavini, s.s. útflutning beint af landsbyggðinni og innanlandsflutningi milli Reykjavíkur og landsbyggðarhafnanna þriggja. Nýja siglingaleiðin muni sömuleiðis spara úr landflutningum og þar með muni dýr olía sparast og álag á vegakerfið minnka.

Styrkir stöðu svæðisins

Daníel Jakobsson, bæjarstjóri á Ísafirði, segir mjög jákvætt að bærinn sé aftur orðinn útflutningshöfn. Það skipti gríðarlegu máli fyrir útflutningsfyrirtæki á svæðinu og styrki samkeppnisstöðu þeirra.

Halla Björk Reynisdóttir formaður bæjarráðs Akureyrar fagnar sömuleiðis þeim samgöngubótum sem af þessu hljótast. „Þetta styrkir stöðu svæðisins til mikilla muna, bæði hvað varðar flutninga til og frá höfuðborgarsvæðinu, en við fögnum ekki síður þeirri beinu leið sem nú opnast við viðskiptalönd okkar í Evrópu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert