Gjaldeyrishöft verða ótímabundin

Magnús Orri Schram og Helgi Hjörvar á Alþingi.
Magnús Orri Schram og Helgi Hjörvar á Alþingi. Sigurgeir Sigurðsson

Frumvarp efnahags- og viðskiptanefndar um gjaldeyrismál var lagt fram á Alþingi í dag og orðið á lögum á innan við klukkustund. Þau fela í sér að gjaldeyrishöftum verður ekki aflétt fyrr en lausn verður tryggð fyrir Ísland. Þverpólitísk sátt var um málið á þingi. 

Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, segir að nefndin hafi einróma ákveðið á fundi í morgun að flytja frumvarpið í dag. Það hafi verið kynnt í þingflokkum í hádegishléi á Alþingi, nýr þingfundur settur kl. 13.30 og málið keyrt í gegn. Það kveður á um að gjaldeyrishöft verða ótímabundin og um samráðsferli í tengslum við stærri undanþágur frá höftunum.

Frumvarpið kemur til í framhaldi af samræðum milli fjármálaráðherra, efnahagsráðherra, Seðlabankans, efnahags- og viðskiptanefndar og stjórnarflokkannar um þær stóru ákvarðanir sem framundan eru í tengslum við snjóhengjuna svonefndu og útgreiðslum úr búum fallinna fjármálafyrirtækja sem geta haft umtalsverð áhrif á skuldastöðu þjóðarbúsins og skipulag fjármálakerfisins.

Helgi Hjörvar segir að framundan séu gríðarlega stórar ákvarðanir og samstaða sé lykillinn að farsæld. Hann segir gleðiefni að þverpólitísk sátt hafi náðst um málið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert