Draugaskipið enn á floti?

Til að gera grein fyrir fjarlægðum þá eru þessar staðsetningar …
Til að gera grein fyrir fjarlægðum þá eru þessar staðsetningar neyðarsendanna það langt suður af Íslandi að TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar gæti flogið á svæðið en hefði engan tíma aflögu fyrir eftirgrennslan og leit áður en halda yrði til baka. AFP

Landhelgisgæslunni bárust í dag upplýsingar um að annar neyðarsendir sem tilheyrir draugaskipinu Lyubov Orlova hafi farið í gang 8. mars sl. og er hann enn að senda frá sér staðsetningarupplýsingar.

Gæslan segir, að þessar staðsetningar séu ekki langt frá þeim stað þar sem annar neyðarsendir frá skipinu fór í gang 25. febrúar. Núverandi staðsetning sendisins sé 685 sjómílur aust-norð-austur af Nýfundnalandi en staðsetning sendisins undir lok febrúar hafi verið um 700 sjómílur aust-norð-austur af Nýfundnalandi. 

„Í eftirlitsflugi Kanadamanna í gær 12. mars kom áhöfn eftirlitsvélarinnar auga á björgunarbát sem líkist þeim sem voru um borð í Lyubov Orlova.  Sá bátur sást í raun á þeim stað þar sem síðast var vitað um skipið í byrjun febrúar.  Það eru næstum 400 sjómílna munur á þessari staðsetningu og staðsetningum neyðarsendanna.  

Leiða má líkum að því að björgunarbáturinn hafi farið fyrir borð fljótlega eftir að síðast var vitað um skipið, eða þegar það var statt í námunda við Flæmska Hattinn austur af Nýfundnalandi.  Sjálfsagt hefur hann fyllst af sjó og því er rekið á honum lítið vegna vindsins.  Skipið sjálft tekur á sig mikinn vind og það getur því rekið mun hraðar,“ segir á vef Landhelgisgæslunnar.

Þá kemur fram, að miðað við það að annar neyðarsendir hafi farið í gang hálfum mánuði á eftir þeim fyrri auki líkur á því að skipið sé enn ofansjávar.  Það geti m.a. stafað af því að gúmmíbjörgunarbátar sem séu í hylkjum á skipinu séu að falla fyrir borð og blásast upp. Við það fari neyðarsendar sem séu inni í þeim í gang.  Ef svo er þá sé það staðsett á svipuðum slóðum og fyrir 2 vikum síðan, þ.e. tæplega 700 sjómílur aust-norð-austur af Nýfundnalandi, rúmlega 500 sjómílur suð-austur af Hvarfi á Grænlandi og u.þ.b. 900 sjómílur suð-vestur af Írlandi.  Hann sé þ.a.l. um 900 sjómílur suðsuðvestur af Íslandi.

Gervitunglamyndir sem teknar voru 1. mars s.l. gáfu til kynna óþekkt fyrirbæri á þessum slóðum en ekkert slíkt hefur þó sést síðan þá að sögn Gæslunnar. Þá segir að strandgæsluyfirvöld beggja vegna Atlantshafsins fylgist með gangi mála en eins og áður hafi komið fram varast þessir aðilar sem og Landhelgisgæslan að fullyrða um afdrif skipsins þar sem um marga óvissuþætti og möguleika sé að ræða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert