Þrenn slysamestu gatnamótin við Miklubraut

Á mótum Grensásvegar og Miklubrautar urðu flest umferðarslys síðustu 5 …
Á mótum Grensásvegar og Miklubrautar urðu flest umferðarslys síðustu 5 árin, alls 174. mbl.is/Golli

Gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar eru ennþá þau hættulegustu á landinu, hvað fjölda slysa varðar. Þar hafa orðið 174 slys og óhöpp á síðustu 5 árum, frá 2008-2012. Þrenn gatnamót við Miklubraut eru á lista yfir 20 verstu slysagatnamót landsins.

Í nýrri skýrslu Umferðarstofu um slys í umferðinni eru m.a. teknar saman upplýsingar um verstu vegakafla landsins, sem og um hættulegustu gatnamótin í þéttbýli. Sjálfsagt kemur fáum á óvart að heyra að gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar séu þar efst á lista enda hafa flest slys orðið þar um nokkurra ára skeið.

Miðað er við 5 ára tímabil þegar slysin eru talin saman og hafa slys, með og án meiðslum, á þessum gatnamótum verið á bilinu 169 til 185 á hverju 5 ára tímabili frá 2004 til 2012.

Þúsundir ökutækja á sólarhring

Alls eru þrenn gatnamót við Miklubraut efst á listanum yfir þau 20 hættulegustu í þéttbýli síðustu 5 árin. Á eftir Grensás/Miklabraut eru næstflest slys á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, alls 147. Í þriðja sæti eru gatnamót Miklubrautar og Háaleitisbrautar, þar sem urðu 142 slys.

Ein helsta skýringin á þessu er auðvitað sú að Miklabrautin er helsta umferðaræð borgarinnar og um hana fara þúsundir ökutækja á hverjum sólarhring. Þó er leitast við að greina orsakir slysanna sem þarna verða og girða fyrir að þau endurtaki sig ef hægt er. Á sínum tíma munaði t.d. talsvert um það þegar sett voru upp beygjuljós á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar.

Í fjórða sæti listans eru gatnamót Hringbrautar við Njarðargötu, þar sem urðu 126 slys á síðustu 5 árum. Í fimmta sæti eru krossgötur Hafnafjarðarvegar, Reykjavíkurvegar, Fjarðarhrauns og Álftanesvegar, þar sem urðu 111 slys á síðustu 5 árum.

Slysum fjölgaði við Lækjargötu

Þegar litið er til slysa með meiðslum lítur listinn aðeins öðru vísi út, en þó eru gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar einnig efst á lista því þar urðu 25 slys með meiðslum á síðustu 5 árum. Önnur hættulegustu gatnamótin hvað þetta varðar eru Bústaðavegur/Reykjanesbraut, þar urðu 22 slys með meiðslum.

Í þriðja sæti er Miklabrautin aftur á gatnamótum við Háaleitisbraut, þar sem urðu 18 slys með meiðslum á síðustu 5 árum, og í fjórða sæti eru gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, þar sem urðu 15 slys með meiðslum á tímabilinu.

Á þennan lista bætast ein ný gatnamót við síðan í fyrra, en það eru mót Lækjargötu, Bankastrætis og Austurstrætis. Þau eru í 12. sæti listans og urðu þar 10 slys með meiðslum á tímabilinu 2008-2012. Á móti detta út gatnamót Fífuhvammsvegar og Dalsvegar, sem voru meðal þeirra hættulegustu í fyrra.

Að öðru leyti eru sömu gatnamót á þeim lista á milli ára, enda um fimm ára summu að ræða og því er um að ræða hægari breytingar en ella.

Lista yfir hættulegustu gatnamótin í þéttbýli má sjá hér að neðan:

Slys og óhöpp, með og án meiðsla 2008-2012:

Miklabraut / Grensásvegur - 174

Miklabraut / Kringlumýrarbraut - 147

Miklabraut / Háaleitisbraut - 142

Hringbraut / Njarðargata - 126

Hafnarfjarðarvegur / Reykjavíkurvegur / Fjarðarhraun / Álftanesvegur - 111

Bústaðavegur / Reykjanesbraut - 89

Flatahraun / Bæjarhraun - 86

Reykjanesbraut / Lækjargata / Hlíðarberg - 84

Suðurlandsbraut /Kringlumýrarbraut / Laugavegur - 79

Hringbraut / Melatorg / Suðurgata - 76

Kringlumýrarbraut / Háaleitisbraut - 74

Kringlumýrarbraut / Listabraut - 64

Nýbýlavegur / Skemmuvegur / Dalvegur / Nýbýlavegur - 63

Bæjarháls / Höfðabakki / Straumur - 63

Breiðholtsbraut / Stekkjarbakki / Skógarsel - 62

Rampi Stekkjarbakka / Reykjanesbraut - 56

Suðurlandsbraut / Skeiðarvogur / Fákafen - 55

Bústaðavegur / Flugvallarvegur - 53

Borgartún / Kringlumýrarbraut - 51

Reykjanesbraut / Fjarðarhraun - 50

Slys með meiðslum 2008-2012:

Miklabraut / Grensásvegur - 25

Bústaðavegur / Reykjanesbraut - 22

Miklabraut / Háaleitisbraut - 18

Miklabraut / Kringlumýrarbraut - 12

Hraunbrún / Reykjavíkurvegur / Flatahraun - 14

Sæbraut / Kringlumýrarbraut - 14

Breiðholtsbraut / Stekkjarbakki / Skógarsel - 13

Borgartún / Kringlumýrarbraut - 12

Hringbraut / Njarðargata - 12

Hafnarfjarðarvegur / Reykjavíkurvegur / Fjarðarhraun / Álftanesvegur - 11

Háaleitisbraut / Bústaðavegur - 11

Lækjargata / Austurstræti / Bankastræti - 10

Sæbraut / Holtavegur - 9

Suðurlandsbraut / Kringlumýrarbraut / Laugavegur - 9

Kringlumýrarbraut / Háaleitisbraut - 8

Lyngháls / Stuðlaháls - 8

Hólahraun / Fjarðarhraun - 7

Nýbýlavegur / Skemmuvegur / Dalvegur / Nýbýlavegur - 7

Suðurlandsbraut / Grensásvegur / Engjavegur - 7

Kringlumýrarbraut na-rampur / Bústaðavegur / Kringlumýrarbraut sa-rampur - 7

Nánari upplýsingar er að finna í

slysaskýrslu Umferðarstofu 2012

Frétt mbl.is:

Versti vegkaflinn er á Suðurlandsvegi
20 hættulegustu gatnamótin í þéttbýli 2008-2012. Slys með meiðslum.
20 hættulegustu gatnamótin í þéttbýli 2008-2012. Slys með meiðslum. Kort/Umferðarstofa
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert