Hvalur 9 gerður klár fyrir veiðar

Hvalur 9, annar hvalveiðibáta Hvals hf., er nú í slipp, en hvalveiðar hefjast að nýju við Íslandsstrendur eftir tveggja ára hlé í byrjun júní. Kvótinn í ár er 154 langreyðar og þetta er síðasta árið sem veiða má langreyði samkvæmt leyfi sem gefið var út til fimm ára árið 2009.

Búist er við því að um 150 manns muni vinna við hvalveiðar og -vinnslu í sumar hjá Hval hf. í Hvalfirði, Hafnarfirði og hugsanlega á Akranesi.

Verið var að háþrýstiþvo Hval 9 í gær, en auk hans verður Hvalur 8 á veiðum í sumar.

Nokkrir hafa orðið til þess að gagnrýna fyrirhugaðar hvalveiðar. Til dæmis mótmælir stjórn Ferðamálasamtaka Íslands þessari ákvörðun harðlega og segir þær skaða orðspor landsins. Þá hefur Alþjóða dýraverndunarsjóðurinn, IFAW fordæmt veiðarnar.

Frétt mbl.is: Hvalveiðar hefjast að nýju

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert