Fjórir ferðamenn fastir á ísjaka

Fjallsárlón
Fjallsárlón mbl.is/Una Sighvatsdóttir
Björgunarsveitirnar Kári í Öræfum og Björgunarfélag Hornafjarðar eru nú á leið að Fjallsárlóni þar sem fjórir erlendir ferðamenn sitja fastir á ísjaka um 10 m frá landi.
Mennirir voru að skoða lónið og stukku á jaka sem var fast upp við land.

Skipti þá engum togum að jakinn flaut frá landi. Einn ferðamannanna náði að stökkva aftur á þurrt en hinir flutu með jakanum það langt út að þeir treystu sér ekki til að komast í land af sjálfsdáðum.

Bændur á svæðinu eiga lítinn bát sem er við lónið og notaður er til að ferja fé yfir það. Verður reynt að ná í mennina á honum. Einnig er bátur frá Jökulsárlóni á leið á staðinn til aðstoðar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert