Slæmt sjólag og Herjólfur fer hvergi

Slæmt sjólag og mikið brot er nú við Landeyjahöfn og því fellur næsta ferð Herjólfs fellur niður frá Vestmannaeyjum kl. 14:30 og frá Landeyjahöfn kl. 16:00.

Þeir farþegar sem eiga bókað í þessar ferðir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til að bóka sig í aðrar lausar ferðir.

 Stefnt er að brottför kl. 17:30 úr Eyjum og 19:00 úr Landeyjahöfn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert