Kjalarnes ófært húsbílum

mbl.is/Arnaldur Halldórsson

Það er mjög hvasst á Kjalarnesi og hafa vindhviður þar farið upp í allt að 35 m/s. Samgöngustofa segir í tilkynningu að vegna veðursins sé ekki óhætt að fara þar um á húsbílum eða bílum með eftirvagna eins og fellihýsi eða hjólhýsi.

Ökumenn eru hvattir til að fylgjast vel með veðri og hægt er að fá upplýsingar í síma 1777 hjá Vegagerðinni eða með því að fara inn á vef Vegagerðarinnar þar sem sjá má upplýsingar um vindhviður í rauntíma.

Það er þoka á Holtavörðuheiði og á Þverárfjallsvegi og vill Samgöngustofa brýna það fyrir ökumönnum að nota þokuljós, bæði aftan og framan, á meðan á þokunni stendur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert