Norskt félag leigir Ytri-Rangá

Togast á við lax í Ytri-Rangá.
Togast á við lax í Ytri-Rangá. mbl.is/Einar Falur

Norska fyrirtækið Heggøy Aktiv hefur tryggt sér leigurétt á Ytri-Rangá til næstu þriggja ára. Gunnar Jónsson, formaður veiðifélags Ytri-Rangár, segir að samningurinn muni koma til endurskoðunar 2015. Um 100 landeigendur eru í veiðifélaginu.

„Samningurinn við Lax-á rann út í ár og ákváðum við að taka hæsta tilboði. Þrír aðilar lögðu fram tilboð,“ segir Gunnar en Lax-á hafði verið með leiguréttinn síðastliðin 12 ár.

Heggøy Aktiv hefur að sögn Gunnars unnið að uppbyggingu laxveiðiár í Noregi. „Þeir óskuðu eftir viðræðum við okkur þegar þeir voru að veiða hér á landi í sumar og samningar náðust í kjölfarið,“ segir Gunnar en fyrir leiguréttinn greiðir fyrirtækið að sögn hans um 100 milljónir á ári. Gunnar segir að nýi samningurinn sé um 10% lægri en fyrri samningur, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert