Undirbúa setningu Alþingis

Alþingi verður sett í dag og er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að setja upp öryggisgirðingar í kringum bygginguna.

Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13.30 þriðjudaginn 1. október með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Séra Guðni Þór Ólafsson, prófastur í Húnavatnsprófastsdæmi, prédikar og séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur. Organisti Dómkirkjunnar, Kári Þormar, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.
Forseti Íslands setur Alþingi, 143. löggjafarþing, og að því loknu flytur forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, ávarp. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 16.00.

Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið verður hlutað um sæti þingmanna. Fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2014 verður þá útbýtt.

Yfirlit helstu atriða þingsetningar:
Kl. 13.25 Þingmenn ganga til kirkju.
Kl. 13.30 Guðsþjónusta.
Kl. 14.05 Þingmenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.
Kl. 14.11 Forseti Íslands setur þingið og flytur ávarp.
Kl. 14.30 Strengjakvartett flytur Hver á sér fegra föðurland.
Strengjakvartettinn skipa Auður Hafsteinsdóttir og Pálína Árnadóttir, fiðlur, Svava Bernharðsdóttir, víóla og Bryndís Halla Gylfadóttir, selló.
Kl. 14.33 Forseti Alþingis flytur ávarp.
Kl. 14.40 Hlé á þingsetningarfundi fram til kl. 16.00.

Framhald þingsetningarfundar:
Kl. 16.00 Tilkynningar, útbýting fjárlagafrumvarps 2014 og hlutað um sæti þingmanna.
Kl. 16.20 Fundi slitið.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða miðvikudagskvöldið 2. október kl. 19.40.
Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2014 þann 3. október kl. 10.30.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert