Braut gegn tveimur 7 ára telpum

Maðurinn sem dæmdur var fyrir að nema tvær 7 ára …
Maðurinn sem dæmdur var fyrir að nema tvær 7 ára telpur á brott.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fertugsaldri í þriggja ára fangelsi fyrir að nema tvær sjö ára telpur á brott skammt frá heimili þeirra í Árbæ 9. janúar síðastliðnum. Maðurinn ók með þér að Hádegismóum og braut gegn þeim.

Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. Þar kom einnig fram að eftir að maðurinn braut gegn telpunum keyrði hann þær aftur í Árbæinn og hleypti þeim út skammt frá þeim stað þar sem hann nam þær á brott.

Lögreglan lýsti eftir manninum í kjölfar þess að málið kom upp og gaf hann sig fram. Hann játaði sök.

Að auki var honum gert að greiða hvorri telpu 800 þúsund krónur í bætur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert