Kviknaði í litlum rafmagnsbíl

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að eldur kviknaði í litlum rafmagnsbíl sem stóð inni í bílskúr í Vallahverfi í Hafnarfirði í kvöld. Um var að ræða lítinn bíl sem ætlaður er börnum. Hann var í hleðslu í bílskúrnum og svo virðist sem eldurinn hafi kviknað út frá því.

Bíllinn var dreginn út úr bílskúrnum og slökkt í honum og þurfti aðeins að reykræsta í kjölfarið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert