Múlagöng lokuð í tvær nætur

Múlagöng.
Múlagöng. Sigurður Ægisson

Múlagöng verða lokuð í þessari viku vegna vinnu verktaka í tvær nætur þ.e. aðfaranætur fimmtudags og föstudags frá kl. 23.00 og til kl. 06.30.

Það skal tekið fram að viðbragðsaðilar geta farið um göngin án tafa þó lokun standi yfir. Vegagerðin vonar að vegfarendur taki þessu vel og sýni ýtrustu aðgát við akstur á meðan framkvæmdum stendur, fyrir og eftir lokanir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert