Skafrenningur á Möðrudalsöræfum

Hálka og hálkublettir eru á flestum fjallvegum landsins og einnig víða á láglendi. Skafrenningur er á Möðrudalsöræfum og flughálka er á Hellisheiði eystri.

Múlagöng verða lokuð vegna vinnu verktaka í tvær nætur, aðfararnótt fimmtudags og föstudags frá klukkan 23.00 og til kl. 06.30.

„Það skal tekið fram að viðbragðsaðilar geta farið um göngin án tafa þó lokun standi yfir. Vegagerðin vonar að vegfarendur taki þessu vel og sýni ýtrustu aðgát við akstur á meðan framkvæmdum stendur, fyrir og eftir lokanir,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert