375 sögðu sig úr þjóðkirkjunni

Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands, ávarpaði Hátíð vonar í lok …
Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands, ávarpaði Hátíð vonar í lok september mbl.is/Golli

Úr þjóðkirkjunni gengu 306 fleiri en í hana á þriðja ársfjórðungi. Í fríkirkjurnar þrjár gengu 39 fleiri en úr þeim og 23 fleiri í önnur trúfélög en úr þeim. Í siðmennt, sem er nýskráð lífsskoðunarfélag, gengu 94. Nýskráðir utan félaga voru 150 fleiri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild sem skráðar hafa verið frá 1. júlí til 30. september 2013.

Alls gengu 375 úr þjóðkirkjunni á tímabilinu 1. júlí til og með 30. september 2013. Af þeim 375 sem gengu úr þjóðkirkjunni skráðu 92 sig í fríkirkjur. Á sama tíma gengu 69 í þjóðkirkjuna, þar af var 25 áður í fríkirkjum.

Sjá nánar hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert