Björgunarsveitir frá Húsavík, Reykjadal og Aðaldal hafa verið kallaðar út til leitar að tveimur rjúpnaskyttum sem eru villtar á Höfuðreiðarmúla norður af Þeistareykjum.
Mennirnir hringdu í Neyðarlínu eftir aðstoð þar sem þeir voru orðnir blautir og kaldir en leiðindaveður er á svæðinu, slydda og snjókoma til fjalla. Sími mannanna er nú straumlaus svo ekki næst frekara samband við þá.
Fyrsti dagur rjúpnaveiða er í dag. Leiðinlegt veður er um norðanvert landið.