Enn logar Fernanda

Fernanda er í togi á eftir varðskipinu Þór.
Fernanda er í togi á eftir varðskipinu Þór. mbl.is

Enn logar í skipinu Fernöndu sem varðskipið Þór er með í togi úti á Faxaflóa. Mikill hiti er í skipuna en eldur hefur logað í því í marga daga. Er þess beðið að það kólni. Ekki hefur enn verið ákveðið hvað verður gert við skipið en möguleiki er á því að það sökkvi eða að því verði sökkt. 

Skipin eru fjarri hrygningarstofnum og veiðisvæðum samkvæmt upplýsingum Hafrannsóknarstofnunar. Þá er allnokkuð dýpi á þessum slóðum.

„Varðskipið Þór er enn með flutningaskipið Fernanda á sömu slóðum og í gærkvöldi þ.e vestur af Faxaflóa en telst það svæði samkvæmt upplýsingum frá Hafrannsóknarstofnun fjarri hrygningarstofnum og veiðisvæðum.  
 
Enn er mikill hiti í síðum skipsins og sprautar varðskipið Þór á skipið eftir því sem aðstæður leyfa.  Leitast er við að halda skipinu á floti og forða því að eldur komist í aðalolíutanka skipsins.  Þannig miðast allar aðgerðir við að draga úr hættu á mengun og um leið tryggja sem best öryggi á vettvangi.
 
Áætlað er að þyrla Landhelgisgæslunnar fari á vettvang eftir hádegi til aðstoðar.  Verður aðgerðum haldið áfram fram eftir degi og staðan endurmetin ef breyting verður á,“ segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
 
 

Sjá einnig: Halda siglingu áfram

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert