Hitinn fór yfir 20 stig á Dalatanga

Dalatangi.
Dalatangi. www.mats.is

20,2 stiga hiti mældist á Dalatanga og 18,5 stiga hiti á Eskifirði í gær en slíkt verður að teljast nokkuð óvenjulegt í nóvembermánuði.

Óli Þór Árnason, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir slíkan hita stundum myndast á Austfjörðum við ákveðnar aðstæður. „Þetta gerist þegar vindur er og hnjúkaþeyr myndast. Þá fer loftið hratt niður austurhlíðar fjallsins og hitnar þannig meira en það kólnaði á leið upp fjallið á vesturhlið þess. Það er vel þekkt að hnjúkaþeyr myndist í suð- og suðvestanáttum og þá er oft hlýtt á Austfjörðum.“

Í nóvember árið 1997 mældist hitinn 23,3 stig á Sauðanesi, en tölurnar frá Dalatanga í gær eru þó á meðal þeirra hæstu sem mælst hafa hér á landi í nóvembermánuði, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert