Starfsmönnum RÚV fækkað um 60

Ríkisútvarpið
Ríkisútvarpið mbl.is/Sigurður Bogi

Vegna niðurskurðar í rekstri Ríkisútvarpsins, en skera þarf niður um hálfan milljarð króna, þarf að fækka  starfsmönnum hjá stofnuninni um 60, þar af verða beinar uppsagnir 39 sem koma til framkvæmda nú þegar.

 „Fjárlagafrumvarpið felur í sér tæplega 300 milljóna króna raunlækkun á tekjum Ríkisútvarpsins samanborið við síðasta ár - en 400 milljóna króna skerðingu sé miðað við það sem gert er ráð fyrir í gildandi lögum og rekstraráætlanir félagsins byggjast á,“ segir í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu. „Þar að auki hefur þurft að lækka áætlaðar auglýsingatekjur um meira en 100 milljónir króna milli ára vegna samdráttar á markaði. Í fjárlagafrumvarpinu kemur einnig fram að þegar útvarpsgjaldið á að renna óskert til RÚV frá og með árinu 2016 verði búið að lækka það um 500 milljónir króna. 

Þannig má segja að áhrif hrunsins verði lögfest inni í rekstri Ríkisútvarpsins til frambúðar - og stjórnvöld hafi ákveðið að lækka þjónustutekjur félagsins til fyrirsjáanlegrar framtíðar um tæpan milljarð króna, eða um rúmlega 20% að raunvirði frá árinu 2009. Til viðbótar þessu kemur svo til framkvæmda um næstu áramót lögþvinguð lækkun á tekjum af kostun og auglýsingum, sem nemur um 400 milljónum króna.

 Að öllu samanlögðu þarf nú að draga árlegan rekstrarkostnað Ríkisútvarpsins saman um 500 milljónir króna - komi ekki til enn frekari skerðingar á tekjum RÚV við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins, sem þá bætist við þessa upphæð.  Þetta leiðir því miður óhjákvæmilega til þess að fækka þarf starfsmönnum hjá Ríkisútvarpinu um 60, þar af verða beinar uppsagnir 39 sem koma til framkvæmda nú þegar,“ segir í tilkynningunni.

Mun hafa áhrif á dagskrá Ríkisútvarpsins

 „Það er óhjákvæmilegt að niðurskurður af þessari stærðargráðu hefur mikil áhrif á dagskrá Ríkisútvarpsins. Hann mun bæði sjást og heyrast. Nokkrir dagskrárliðir  í útvarpi og sjónvarpi munu hverfa, öðrum fækkar og enn aðrir breytast og þynnast. Fréttatímar munu styttast og þeim mun fækka“, segir Páll Magnússon, útvarpsstjóri í tilkynningunni.

„Hafa verður í huga að nú stefnir í að þjónustutekjur Ríkisútvarpsins hafi dregist saman um rúmlega 20% að raungildi á fimm ára tímabili. Okkur hefur hingað til tekist að verja dagskrána sjálfa furðu vel fyrir þessum samdrætti, - annars vegar með mikilli lækkun á öðrum rekstrarkostnaði og hins vegar með nokkurri aukningu á kostunar- og auglýsingatekjum. Nú verður ekki lengra gengið í lækkun á öðrum kostnaði og sömuleiðis tekur við lögþvinguð lækkun á kostunar- og auglýsingatekjum RÚV um næstu áramót – ofan á almennan samdrátt á þeim markaði. Það eru því ekki aðrar leiðir færar til að mæta aðgerðum stjórnvalda nú en að fækka starfsfólki og draga saman í dagskrá.

Við munum auðvitað halda áfram að leggja okkur öll fram um að veita eigendum Ríkisútvarpsins – fólkinu í landinu – eins góða þjónustu og frekast er unnt, miðað við þá skertu fjármuni sem eru til ráðstöfunar. Hér er ekki um flatan niðurskurð á allri dagskrárstarfsemi að ræða heldur er forgangsraðað í samræmi við lögbundnar skyldur og stefnumörkun Ríkisútvarpsins. Grunnþjónustan verður áfram til staðar en dagskrárgæðin rýrna óhjákvæmilega,“ er haft eftir Páli í fréttatilkynningu.

Páll Magnússon útvarpsstjóri.
Páll Magnússon útvarpsstjóri. mbl.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert