Klaufalegar uppsagnir

Gengið til stuðnings RÚV í gær.
Gengið til stuðnings RÚV í gær. Eggert Jóhannesson

Fréttir af fyrirhuguðum niðurskurði og fjöldauppsögnum á Ríkisútvarpinu komu sem reiðarslag yfir alla þá sem láta sig þá stofnun skipta. „Með þessu fékkst hins vegar að hluta svar við nokkrum spurningum sem Hollvinir Ríkisútvarpsins sendu menningarmálaráðherra í sumar en var svarað fyrr í haust með þeim útúrsnúningi að ráðherra hefði þegar svarað þeim öllum í fjölmiðlum.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hollvinum Ríkisútvarpsins.

Nú hefur verið tilkynnt að sagt verði upp sem svarar 60 stöðugildum hjá ríkisútvarpinu og þar af komi 39 uppsagnir til framkvæmda nú þegar. „Við mótmælum sérstaklega hve klaufalega, ófaglega og ómannlega var gengið fram í uppsögnum, þegar fólki var gert að yfirgefa húsið samstundis, standa jafnvel upp frá hálfunnum þáttum, en fundið gamalt efni til að fylla upp í tímann. Þetta minnir á aðfarir í einkafyrirtækjum þar sem hagsmunir starfsfólks eru einskis metnir,“ segir í tilkynningunni.

Á síðustu fimm árum hefur verið dregið saman í rekstri Ríkisútvarpsins um fimmtung og vandséð er að þegar þetta bætist við geti stofnunin staðið undir þeim kröfum sem gerðar eru til hennar um rekstur almannaútvarps á Íslandi.

Samtökin Hollvinir ríkisútvarpsins voru stofnuð um síðustu aldamót til að berjast gegn hugmyndum um einkavæðingu þess. Þau lögðust eindregið gegn því að rekstrarforminu yrði breytt úr ríkisstofnun í opinbert hlutafélag og gáfu lítið fyrir þau rök að það væri rekstrarform sem hentaði vel. Ekki er að sjá að rekstrarformið hafi orðið til bjargar á tímum erfiðs efnahags.

Þvert á móti.

 Ekki verður annað séð en pólitísk öfl, sem lengi hafa haft horn í síðu Ríkisútvarpsins, vinni leynt og ljóst að því að eyðileggja stofnunina. Ef pólitískt markmið stjórnvalda er að selja Ríkisútvarpið er með þessu hins vegar verið að lækka markaðsvirði þess og gæti vaknað grunur um að tilgangurinn væri að vildarvinir þeirra sem nú fara með völdin ættu auðveldara með kaupin. Þegar litið er á nöfn þeirra sem sagt hefur verið upp virðist sem einkum sé verið að grafa undan Rás 1 og Fréttastofu ríkisútvarpsins og spilla þar með þeim yfirburðum sem RÚV hefur haft til að geta kallast almannaútvarp,“ segir í yfirlýsingunni.

Undir hana skrifa: 

 Þorgrímur Gestsson,formaður

 Viðar Hreinsson

Þór Magnússon

Ragnheiður Tryggvadóttir

Valgeir Sigurðsson

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert