Stal peningum úr söfnunarbauk

mbl.is/Hjörtur

Tilkynning barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um klukkan hálf ellefu í morgun frá kaffihúsi við Höfðatorg í Reykjavík um að grunsamlegur karlmaður væri að eiga við söfnunarbauk fyrir barnaspítala Hringsins.

Starfsfólki kaffihússins tókst að verja baukinn fyrir manninum sem hvarf á braut. Lögreglumenn sem voru á vakt í austurborginni svipuðust um eftir manni í nágrenninu sem passaði við lýsinguna.

Skömmu síðar var erlendur maður handtekinn í nágrenninu og kom í ljós í kjölfarið að lýsingin á honum kom heim og saman við mann sem hafði stolið samskonar söfnunarbauk fyrir barnaspítala Hringsins í ísbúð við Fákafen síðastliðna nótt

Peningarnir úr bauknum fundust á dvalarstað mannsins. Baukinn hafði hann losað sig við.  Maðurinn, sem er á fimmtugsaldri og nýkominn til landsins, gistir nú fangageymslu. Samkvæmt alþjóðlegri eftirlýsingarskrá mun pólska lögreglan eiga eitthvað vantalað við hann segir í tilkynningu frá lögreglunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert