Hvetja til þess að sniðganga vöru

Verslunarmannafélag Suðurlands
Verslunarmannafélag Suðurlands

Haldinn var í kvöld á Selfossi almennur félagsfundur Verslunarmannafélags Suðurlands og var sammælst um að hvetja félagsmenn, jafnt sem félaga í öðrum stéttarfélögum landsins, til þess að sniðganga þau fyrirtæki sem boðað hafa hækkanir á vöru og þjónustu að undanförnu.

Þá fordæmir fundurinn hækkanir ríkisins á gjaldskrá heilbrigðisþjónustu, sem tóku gildi nú um áramótin, auk þess sem athygli er vakin á því að gengi íslensku krónunnar hefur styrkst mikið á síðustu misserum. „Sem gefur enn frekar tilefni til engra hækkana, miklu fremur lækkun á vörum og þjónustu,“ segir í tilkynningu sem Verslunarmannafélag Suðurlands sendi frá sér í kjölfar fundarins.

Þar segir ennfremur að aldrei hafi verið brýnna en nú að þjóðin sameinist um að verðbólga lækki og verði aldrei meiri en 2,5% í lok árs 2014.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert