Borgó og MK sigruðu Flensborg og FÍV - spá

Björn Bragi er spyrill Gettu betur.
Björn Bragi er spyrill Gettu betur.

Fjögur lið öttu kappi í spurningakeppninni Gettu betur í dag.

Lið Borgarholtsskóla og Flensborgarskólans í Hafnarfirði mættust klukkan 14.00 og hálftíma síðar kepptu Menntaskólinn í Kópavogi og Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum.

Borgó vann Flensborg með 23 stigum gegn 16 og MK lagði FÍV með 17 stigum gegn 11.

Klukkan 21.00 mætir Tækniskólinn Fjölbrautaskóla Suðurlands og hálftíma síðar, klukkan hálftíu, eigast við lið Iðnskólans í Hafnarfirði og Menntaskólans á Ísafirði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert