Langaði að stökkva í sjóinn

Skömmu fyrir klukkan tvö í nótt var tilkynnt um mann sem stökk í sjóinn við Miðbakka. Þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn kominn í land. Aðspurður sagði hann að sig hefði lengi langað til að stökkva í sjóinn. Honum varð ekki meint af og var honum ekið til síns heima, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert