Rennslið ofmetið vegna íss

Skaftárhlaupið náði hámarki á mánudag.
Skaftárhlaupið náði hámarki á mánudag. mbl.is/Jónas Erlendsson

Fyrr í dag voru starfsmenn Veðurstofunnar á Vatnajökli og þeir staðfestu að Skaftárhlaupið kom úr vestari katlinum. Rennsli Skaftár við Sveinstind heldur áfram að sjatna eftir að hámarki var náð þar snemma þann 20. janúar.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni er vakin athygli á því að rennslið við Sveinstind er líklega ofmetið vegna íss í árfarveginum, en rennslið við Skaftárdal er nú um 196 rúmmetrar á sekúndu og fer hægt minnkandi. Úrkoma síðasta sólahringinn hefur hjálpað til við að viðhalda hámarki hlaupsins í Eldvatni, Kúðafljóti og Skaftá. Gera má ráð fyrir að hlaupið muni halda áfram að sjatna á næstu dögum.

 Eystri ketillinn er einnig fullur af vatni og er löngu kominn á tíma. Síðasta hlaup úr eystri katlinum var í júní 2010 og stöku sinnum hafa báðir katlarnir tæmst með nokkurra vikna millibili. Vatnssöfnun í Eystri-Skaftárkatlinum er nokkuð jöfn, því er langur tími á milli flóða jafnan ávísun á stór flóð. Hámarksrennsli í hlaupum úr eystri katlinum hefur mest orðið um 1.500 rúmmetrar á sekúndu við Sveinstind. Skaftá getur vaxið úr eðlilegu rennsli í 1.000 til 1.500 rúmmetra á sekúndu á innan við sólarhring. Eins og staðan er núna eru þó engin sjáanleg merki þess að hlaup sé að hefjast úr eystri katlinum.

 Starfsmenn Veðurstofu fylgjast náið með þróuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert