Vélstjórar felldu samning

Kjarasamningar Félags vélstjóra og málmtæknimanna (VM), sem undirritaðir voru í desember, voru felldir í allsherjaratkvæðagreiðslu.

Um var að ræða kjarasamninga VM vegna starfa félagsmanna á almennum vinnumarkaði í landi, þ.e. málmiðnaðarmanna, netagerðarmanna og vélstjóra, auk þeirra sem starfa á samningum félagsins við orkufyrirtækin.

Kosið var sameiginlega um samningana og lauk atkvæðagreiðslu kl. 24:00 þriðjudaginn 21. janúar.

Á kjörskrá voru 1751 en 364 tóku þátt í kosningunni, þ.e. 20,8%. Já sögðu 162 eða 44,5% greiddra atkvæða. Nei sögðu 196 eða 53,8% greiddra atkvæða og 6 sátu hjá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert