Magnús Geir ráðinn útvarpsstjóri

Magnús Geir Þórðarson
Magnús Geir Þórðarson mbl.is/Golli

Stjórn Ríkisútvarpsins hefur ákveðið að ráða Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóra Borgarleikhússins, sem útvarpsstjóra. Ákvörðunin um að bjóða honum stöðuna var tekin samhljóða á fundi stjórnar í kvöld.

Magnús lauk MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005 og árið 2003 lauk hann meistaranámi í leikhúsfræði frá University of Wales. Hann var leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar frá árinu 2004 þar til hann tók við stöðu leikhússtjóra Borgarleikhússins árið 2008.

Staða útvarpsstjóra var auglýst í desember í kjölfar þess að Páll Magnússon lét af störfum. Alls bárust 39 umsóknir um stöðuna.

„Stjórn Ríkisútvarpsins lagði áherslu á faglegt og vandað ráðningarferli og var ráðgjöfum hjá Capacent falin umsjón með ferlinu. Að liðnum umsóknarfresti fóru ráðgjafar yfir framlögð gögn umsækjenda og greindu með tilliti til þeirra hæfniskrafna sem fram voru settar í auglýsingunni um starfið,“ samkvæmt fréttatilkynningu frá stjórn RÚV.

Að fenginni tillögu ráðgjafa voru þeir ellefu umsækjendur sem best þóttu uppfylla hæfniskröfur um reynslu af stjórnun, rekstri og stefnumótunarvinnu, samkvæmt framlögðum gögnum,  boðaðir í viðtal. 

Í framhaldi þess þótti ljóst að sex umsækjendur þóttu best uppfylla hæfniskröfur og voru þeir kallaðir til frekari viðtala við fulltrúa stjórnar Ríkisútvarpsins. Viðtölin sátu Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður, Magnús Stefánsson varaformaður og  Björg Eva Erlendsdóttir stjórnarmaður ásamt ráðgjafa.

„Það var sameiginlegt mat allra sem sátu viðtölin að boða skyldi fjóra umsækjendur í áframhaldandi viðtal til að kynna hugmyndir sínar um framtíðarsýn og hlutverk Ríkisútvarpsins fyrir allri stjórn Ríkisútvarpsins. Þau viðtöl fóru fram 26. janúar og var í kjölfar þeirra ákveðið samhljóða á stjórnarfundi að ráða Magnús Geir Þórðarson. Var sérstaklega litið til margra ára farsællrar reynslu hans af stjórnun og rekstri og þeim athyglisverða árangri sem hann hefur náð á sínum ferli, bæði sem leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar og síðastliðin ár sem leikhússtjóri Borgarleikhússins,“ segir í tilkynningu.

Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður stjórnar Ríkisútvarpsins ohf., segir í tilkynningu:

„Það  er ánægjulegt hversu margir öflugir og hæfileikaríkir einstaklingar sóttu um stöðu útvarpsstjóra. Það ríkti eindrægni um niðurstöðuna í stjórninni enda var það álit stjórnar að Magnús Geir uppfyllti best, af mörgum hæfum umsækjendum, þær hæfniskröfur sem settar voru fram. Ég bind miklar vonir við nýjan útvarpsstjóra sem ég tel að muni veita Ríkisútvarpinu farsæla forystu á næstu árum.“   

Viðtal mbl.is við Magnús Geir.     

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert