40-50 m/s í Öræfum

Vegagerðin varar við mjög hvassri austanátt um tíma í Öræfasveit og er því spáð að vindhraðinn  verði 40-50 metrar á sekúndu í hviðum frá hádegi til klukkan fjögur síðdegis.

Eins má búast við varasömum akstursskilyrðum á Hellisheiði og í Þrengslum, hríðarkófi og blindu síðdegis. Hviður 30-40 m/s undir Eyjafjöllum um miðjan dag og síðdegis undir Hafnarfjalli.

Norðaustan- og austanlands má reikna með dimmri hríð ásamt skafrenningi á fjallvegum upp úr miðjum degi og fram á kvöld. Stormur og ofanhríð einnig vestantil á Norðurlandi, á Vestfjörðum og í Dölum um tíma undir kvöldið sumstaðar einnig í byggð. En annars hlánar um land allt á endanum.

Flestar aðalleiðir á Suðurlandi eru greiðfærar og hringvegurinn er auður allt austur á Djúpavog. Hálkublettir eru á Mosfellsheiði og nokkrum fáfarnari vegum. Hálka er á Bláfjallavegi og í Kjósarskarði en flughált í Efri Grafningi.

Það er hálka eða hálkublettir á köflum á Vesturlandi, einkum á útvegum. Skafrenningur er bæði á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði.

Á Vestfjörðum er víða hvasst og skafrenningur eða ofankoma. Stórhríð er á Klettshálsi, Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði og þar ekki útlit fyrir að opnist í dag. Óveður er á Gemlufallsheiði og þæfingsfærð. Þæfingur er einnig á kafla í Djúpinu.

Hálka eða snjóþekja er víðast hvar á Norðurlandi og hríðarveður. Stórhríð er á Þverárfjalli og vegur ófær. Eins er ófært bæði á Hólasandi og Dettifossvegi.

Snjóþekja eða hálka er á flestum vegum á Austurlandi og sumstaðar skafrenningur. Greiðfært er frá Djúpavogi suður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert