Maðurinn enn ófundinn

Siglingar við Reykjavíkurhöfn
Siglingar við Reykjavíkurhöfn Árni Sæberg

Maðurinn sem leitað var að í Reykjavíkurhöfn í gærkvöldi hefur ekki fundist. Fundað verður klukkan ellefu um framhald leitarinnar.

Mikill vindur var þegar maðurinn féll í sjóinn, og er haft eftir sjónarvottum að eina stundina hafi maðurinn staðið á varnargarðinum, þá næstu hafi ekkert sést til hans. Björgunarsveitir voru kallaðar út um þremur kortérum eftir að maðurinn féll í sjóinn um klukkan 21:00.

Leita að manni í Reykjavíkurhöfn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert