Heimilt að taka jarðir eignarnámi

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ráðherra iðnaðar- og viðskiptamála, Ragnheiður Elín Árnadóttir, hefur heimilað Landsneti hf. að framkvæma eignarnám í ákveðnum jörðum á Suðurnesjum vegna lagningu Suðurnesjalínu 2 á grundvelli 23. greinar raforkulaga.

„Beiðni um eignarnám barst ráðuneytinu í febrúar 2013 og hefur gagnaöflun staðið yfir síðan. Eignarnámsbeiðnin snýr að 220 kV háspennulínu (Suðurnesjalínu 2) sem fyrirhugað er að reisa á milli Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar með það að markmiði að styrkja með almennum hætti raforkuflutningskerfið á Suðurnesjum. Í ákvörðun ráðuneytisins um að heimila eignarnám er rakið að öll skilyrði eignarnáms séu að mati ráðuneytisins til staðar, þ.e. skilyrði um lagafyrirmæli, að samningaleið hafi verið reynd til þrautar, að almenningsþörf liggi að baki, að nauðsyn beri til, að meðalhófs sé gætt og skilyrði um afmörkun eignarnáms,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Fram kemur að í eignarnáminu felist ákveðinn afnotaréttur af viðkomandi jörðum fyrir Landsnet, í þágu framkvæmdarinnar. Þá segir að um bætur vegna eignarnámsins fari samkvæmt lögum um framkvæmd eignarnáms og matsnefnd eignarnámsbóta skeri úr ágreiningi um eignarnámsbætur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert