Tekinn á 179 km hraða á leið í flug

Mynd úr safni
Mynd úr safni

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði för ferðamanns á Reykjanesbraut í vikunni en viðkomandi ók á 179 kílómetra hraða. Sagðist hann vera að flýta sér í flug. Hann greiddi sektina á staðnum, 120 þúsund krónur. 

Nítján ökumenn voru sektaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Aðrir ökumenn sem óku of hratt mældust á bilinu 117 til 148 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar. Þá ók einn á 126 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar á klukkustund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert