Skil 20-25% betri en í fyrra

Nú orðið skila fáir skattframtali upp á gamla mátann.
Nú orðið skila fáir skattframtali upp á gamla mátann. mbl.is/Árni Sæberg

„Framtalsskilin fara mjög vel af stað. Það hafa ekki komið upp nein teljandi vandamál við framtalsgerðina,“ segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

„Menn virðast vera heldur fyrr á ferðinni,“ bætir hann við. Opnað var fyrir skil skattframtala síðastliðinn föstudag, 7. mars, og eru þau mun betri en á sama tíma í fyrra.

Að sögn Skúla Eggerts voru skilin í gær orðin 20 til 25% meiri en á sama tíma fyrir ári. Þegar rætt var við hann síðdegis í gær var búið að skila rúmlega 24 þúsund skattframtölum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert