DV áfrýjar til Hæstaréttar

Reynir Traustason ritstjóri DV.
Reynir Traustason ritstjóri DV. mbl.is/Sigurður Bogi

DV hefur tekið ákvörðun um að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Söru Lindar Guðbergsdóttur gegn blaðinu. Dómurinn var kveðinn upp í síðasta mánuði en DV og Reynir Traustason voru dæmdir til að greiða Söru óskipt 300.000 krónur í miskabætur með dráttarvöxtum.

Þá á Reynir að greiða Söru 621.800 krónur til að kosta birtingu dóms í málinu, þ.e. forsendur og dómsorð, í víðlesnu dagblaði. Þá eiga Reynir og DV ehf. að greiða Söru óskipt 500.000 krónur í málskostnað að meðtöldum virðisaukaskatti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert