Öllum framkvæmdastjórum sagt upp

Miklar skipulagsbreytingar eru fyrirhugaðar hjá Ríkisútvarpinu sem meðal annars fela í sér að öllum framkvæmdastjórum þess verði sagt upp störfum og ný framkvæmdastjórn skipuð þar sem lögð verður áhersla á jafnrétti og fjölbreytileika. Þá verði aukin áhersla lögð á innlenda framleiðslu, jafnrétti og nýmiðlun. Þetta er meðal þess sem Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri tilkynnti starfsfólki Ríkisútvarpsins á fundi í morgun.

Fyrir utan útvarpsstjóra eru í framkvæmdastjórn Óðinn Jónsson fréttastjóri, Ingólfur Bjarni Sigfússon nýmiðla - og vefstjóri, Berglind G. Bergþórsdóttir mannauðsstjóri, Bjarni Guðmundsson framkvæmdastjóri sjónvarps, Skarphéðinn Guðmundssondagskrárstjóri, Magnús R. Einarsson settur dagskrárstjóri Rás 1 og Rás 2, Eyjólfur Valdimarsson sem fer fyrir tæknimálum, Þorsteinn Þorsteinsson markaðsstjóri og Bjarni Kristjánsson fjármálastjóri.

Einnig kom fram í máli hans að vinna sé hafin við endurskoðun á húsnæðismálum Ríkisútvarpsins. Skoðaðir verði möguleikar á flutningum í hentugra húsnæði eða breytingum á núverandi húsnæði. Samhliða verði unnið að endurnýjun á tæknibúnaði til að gera miðlum Ríkisútvarpsins betur kleift að mæta nýjum tíma. Þá verða fjármál þess sömuleiðis endurskoðuð en uppfærð rekstraráætlun Ríkisútvarpsins var kynnt á fundi stjórnar í gær þar sem fram kom að tap fyrstu sex mánuði rekstrarársins verði rúmlega 300 milljónir króna. Ennfremur hefur verið óskað eftir óháðri úttekt á fjármálum Ríkisútvarpsins.

Fréttatilkynning Ríkisútvarpsins í heild:

„Nýr útvarpsstjóri, Magnús Geir Þórðarson, kynnti starfsfólki RÚV í morgun áherslur sínar og stefnu í rekstri Ríkisútvarpsins og skipulagsbreytingar til að styðja við þær áherslur. Leggja á aukna áherslu á innihald og sköpun í miðlum RÚV með því að setja innlenda gæðaframleiðslu á oddinn. Þá hyggst útvarpsstjóri leitast við að opna samtalið um Ríkisútvarpið, hlutverk þess, stefnu og dagskrá. Jafnrétti milli kynja og út frá búsetu verður í forgangi og lagði Magnús Geir jafnframt áherslu á að dagskrá RÚV nái til nýrra kynslóða og að regluleg endurnýjun verði í hópi áhorfenda og hlustenda.

Nýtt skipulag og skipurit Ríkisútvarpsins, sem ætlað er að styðja við þessar áherslubreytingar, var samþykkt af stjórn RÚV í gær. Í nýja skipuritinu fær dagskrárhluti starfseminnar aukið vægi, stoðsvið eru sameinuð og töluverð breyting verður á hlutverkum sviða Ríkisútvarpsins. Nýjar stöður framkvæmdastjórnar RÚV verða auglýstar lausar til umsóknar. Við samsetningu nýrrar framkvæmdastjórnar verður m.a. gætt að fjölbreytileika og jafnvægi milli kynja. Nýtt skipulag og skipurit mun taki gildi þegar ný framkvæmdastjórn hefur tekið til starfa að loknu ráðningarferli. Núverandi framkvæmdastjórn sinnir störfum sínum áfram fram að þeim tíma.

Þá kom fram hjá útvarpsstjóra í morgun að vinna sé hafin við endurskoðun á húsnæðismálum Ríkisútvarpsins. Skoðaðir verða möguleikar á flutningum í hentugra húsnæði eða breytingum á núverandi húsnæði. Samhliða verður unnið að endurnýjun á tæknibúnaði RÚV til að gera miðlum þess betur kleift að mæta nýjum tíma. Fjármál fyrirtækisins verða sömuleiðis endurskoðuð en uppfærð rekstraráætlun Ríkisútvarpsins var kynnt á fundi stjórnar RÚV í gær.

Liggur fyrir að tap af rekstrinum verður umtalsvert meira en áætlanir fráfarandi framkvæmdastjórnar gerðu ráð fyrir. Nú er gert ráð fyrir að tapið verði 305 m. kr. fyrstu sex mánuði ársins og 357 m. kr. á rekstarárinu öllu, jafnvel þó að gripið hafi verið til umfangsmikilla niðurskurðaraðgerða á tímabilinu. Þetta mikla tap mun hafa veruleg áhrif á eigið fé Ríkisútvarpsins, en það var við lok síðasta rekstrarárs 653 m. kr. Ríkisútvarpið sendi af þessum sökum afkomuviðvörun til Kauphallarinnar í gær.

Þá hefur stjórn Ríkisútvarpsins óskað eftir óháðri úttekt á fjármálum stofnunarinnar. Vonir eru bundnar við að áðurnefndar skipulagsbreytingar og nýjar áherslur muni styrkja dagskrána, straumlínulaga reksturinn og bæta fjárhagsstöðu RÚV og þar með koma í veg fyrir frekari hópuppsagnir. Stefnt er að því að áherslubreytingarnar birtist hlustendum og áhorfendum RÚV fyrir haustið.

„Ríkisútvarpið hefur verið með þjóðinni í hartnær heila öld og er ein helsta menningar- og lýðræðisstofnun þjóðarinnar. Eftir erfiða tíma að undanförnu er kominn tími til að draga línu í sandinn, snúa vörn í sókn og horfa bjartsýn til framtíðar. RÚV býr yfir einstökum hópi starfsmanna og á ríkan sess í hjörtum landsmanna. Það eru mikil tækifæri til sóknar og ég er ekki í vafa um að framundan séu spennandi tímar þar sem sköpun, metnaður og gleði verða höfð að leiðarljósi.
Við viljum leggja aukna áherslu á innihaldið, dagskrána sjálfa og innlenda gæðaframleiðslu. Samhliða viljum við opna samtalið um okkar Ríkisútvarp. Við viljum vera með þjóðinni og setja áhorfendur og hlustendur í fyrsta sæti. Til að þetta sé mögulegt þurfum við að stokka starfsemina upp til að nýta betur þann auð sem við búum yfir á Ríkisútvarpinu,“ segir Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri.

Meðal breytinga sem gerðar verða:

  • Dagskrársvið Rásar 1 og Rásar 2 verða aðskilin til að styrkja rásirnar og aðgreina betur áferð þeirra og efnistök. Samhliða verður lögð aukin áhersla á ritstjórn á hverjum miðli RÚV.
  • Nýtt samskiptasvið mun vinna að því að opna umræðuna um Ríkisútvarpið. Það tekur yfir kynningarhluta þess sem áður hét markaðssvið.
  • Nýtt sameinað svið mun annast fjármál, rekstur og tækniþjónustu. Markmiðið er að ná fram aukinni hagræðingu í starfsemi RÚV með skilvirkara skipulagi.
  • Íþróttadeild og svæðisstöðvar færast frá fréttastofu. Íþróttadeild færist yfir á dagskrársvið sjónvarps en staðsetning svæðisstöðva í nýju skipulagi verður kynnt síðar
  • Nýmiðladeild verður efld“
Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri.
Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri. mbl.is/Þórður
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert