Vonbrigði með makrílsamninginn

Makríll
Makríll mbl.is/Sigurður Bogi

Umhverfis- og auðlindanefnd Norðurlandaráðs lýsti í dag yfir vonbrigðum með makrílsamning Norðmanna, Færeyinga og Evrópusambandsins. Atvinnuvegaráðuneytið greinir frá þessu.

Ráðið gagnrýnir að í samningnum sé gert ráð fyrir veiðum sem séu langt frá því að geta talist sjálfbærar, þar sem þær heimili langtum meiri veiðar en veiðiráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins ICES kveður á um.

Talsmaður nefndarinnar, Sjúrdur Skaale, segir það algert grundvallaratriði að fiskveiðiþjóðir haldi sig við veiðiráðgjöf. Það sé mikilvægt að strandríkin öll nái samkomulagi sín á milli um ákvörðun heildarafla og skiptingu hans. 

Í ljósi þess að of oft komi upp ágreiningur um þessi mál þá sé það jafnframt mikilvægt að ríkin sem hlut eigi að máli komi sér saman um traustan lagalegan grundvöll til að byggja á ákvarðanir um veiðar á uppsjávarfiski og flökkustofnum.

Sjá frétt á vef Norðurlandaráðs

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert