Jökulhlaup er hafið í Gígjukvísl

Gígjukvísl.
Gígjukvísl. mbl.is/Sigurður

Jökulhlaup er hafið í Gígjukvísl, það kemur úr Grímsvötnum. Samkvæmt mælingum Jarðvísindastofnunar Háskólans er vatnsmagn í Grímsvötnum nú svipað og fyrir lítið hlaup í nóvember 2012.

Því má búast við að hámarksrennsli nú verði svipað og þá eða af stærðargráðunni 1000 rúmmetrar á sekúndu.

Búast má við að hlaupið nái hámarki í lok vikunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert