Dregur úr stuðningi við Sjálfstæðisflokk

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Ómar

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 28. mars til 1. apríl 2014.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 38,7% en mældist 40,9% í síðustu mælingu (sem lauk þann 28. febrúar s.l.) og 46,6% um miðjan febrúar s.l. (lauk 15. febrúar).


Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,9%, borið saman við 29,0% í könnun frá lok febrúar. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 17,1%, borið saman við 16,4% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 15,1%, borið saman við 14,0% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 14,4%, borið saman við 14,6% í síðustu könnun. Vinstri-græn mældust nú með 11,5% fylgi, borið saman við 10,4% í síðustu könnun. Píratar mældust nú með 11,0% fylgi, borið saman við 9,3% fylgi í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,3% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,1%), myndu skila auðu (5,8%), myndu ekki kjósa (2,4%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,7%). 

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 86,3% afstöðu til spurningarinnar.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 960 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 28. mars til 1. apríl 2014

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert