Vegir víða greiðfærir

Morgunblaðið/Kristinn

Vegir eru nú að mestu greiðfærir á Suðurlandi og Vesturlandi. Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði og á Vatnaleið, snjóþekja og skafrenningur á Bröttubrekku og hálka á Fróðárheiði.

Á Vestfjörðum er víða snjóþekja og einhver skafrenningur, þæfingsfærð er um Klettsháls en ófært er norður í Árneshrepp á Ströndum.

Á Norðurlandi er snjóþekja og skafrenningur á Þverárfjalli og á Öxnadalsheiði, annars eru hálkublettir á nokkrum fjallvegum og á stöku stað í innsveitum. Ófært er á Hólasandi og Dettifossvegi.

Hálkublettir eru á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og eins á Vopnafjarðarheiði.

Á Austurlandi er hálkublettir á Fjarðarheiði og Breiðdalsheiði en snjóþekja á Vatnskarði eystra.  Vegir á Héraði eru óðum að verða greiðfærir og einnig er greiðfært með suðausturströndinni.

Nú þegar frost er að fara úr jörð þarf víða að banna allan akstur á hálendinu til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru. Þeir sem hyggja á fjallaferðir eru beðnir að kynna sér ástand á viðkomandi leiðum og virða akstursbann þar sem það er í gildi. Sjá nánar hér

Vegna aurbleytu og/eða hættu á slitlagsskemmdum þarf sumsstaðar að takmarka ásþunga. Frekari upplýsingar má sjá með að því að smella hér eða í síma 1777.

Vegna vinnu við endurnýjun á rafkerfum í Múlagöngum má búast við umferðartöfum þar yfir nóttina, frá kl. 21:00 til kl. 06:00 að morgni. Vegfarendur eru beðnir að gæta varúðar og virða hraðatakmarkanir meðan á framkvæmdum stendur.

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert