Krapi, hálka og éljagangur

Vegir eru að mestu  greiðfærir á Suðurlandi. Á Vesturlandi er Hálka og éljagangur á Holtavörðuheiði en hálkublettir og éljagangur á Bröttubrekku, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar um færð og aðstæður á vegum landsins. 

Á Vestfjörðum er sumsstaðar krap, snjóþekja, hálka og hálkublettir á fjallvegum og sumstaðar éljagangur og skafrenningur. Snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði en hálkublettir á Þröskuldum. Ófært er norður í Árneshrepp á Ströndum en unnið að mokstri.

Vegir eru mikið til auðir á Norðurlandi. Krapi er þó á Dettifossvegi en hálkublettir á Öxnadalsheiði og Hólasandi.

Hálkublettir eru á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og eins á Vopnafjarðarheiði.

Á Austurlandi eru vegir orðnir greiðfærir sem með suðausturströndinni.

Akstursbann á hálendinu

Nú þegar frost er að fara úr jörð þarf víða að banna allan akstur á hálendinu til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru. Þeir sem hyggja á fjallaferðir eru beðnir að kynna sér ástand á viðkomandi leiðum og virða akstursbann þar sem það er í gildi. Sjá nánar hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert