Reyndi að stela fatnaði

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Tilkynnt var um þjófnað í verslunarmiðstöð í gær en maður tók fatnað fyrir tæplega 10 þúsund krónur. Var hann stöðvaður af starfsfólki, játaði verknaðinn og var látinn laus eftir skýrslutöku. 

Þá var ökumaður stöðvaður í Hafnarfirði grunaður um ölvun við akstur. Hann handtekinn, fluttur á lögreglustöð og látinn laus eftir sýnatöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert