Strætó ekur alla páskadagana

Strætó verður á ferðinni alla páskana.
Strætó verður á ferðinni alla páskana. mbl.is/Styrmir Kári

Strætó mun aka alla páskadagana. Yfir hátíðisdagana verður ekið samkvæmt hefðbundinni sunnudags áætlun.   

Á skírdag, fimmtudaginn 17. apríl, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Föstudaginn langa, 18. apríl, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Laugardaginn 19. apríl verður ekið samkvæmt hefðbundinni laugardagsáætlun. Á páskadag, sunnudaginn 20. apríl, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Annan í páskum, mánudaginn 21. apríl, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.



Allar nánari upplýsingar má fá á strætó.is eða í þjónustusíma Strætó, 540 2700.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert