Reyndi að kveikja í Verkmenntaskólanum

Verkmenntaskólinn á Akureyri.
Verkmenntaskólinn á Akureyri.

Stúlka á átjánda ári gerði tilraun til að kveikja í Verkmenntaskólanum á Akureyri seint í gærkvöldi. Slökkviliðinu barst fljótlega tilkynning um málið og tókst því að ráða niðurlögum eldsins í tæka tíð.

Minniháttar tjón hlaust af eldinum.

Að sögn lögreglunnar á Akureyri beindist grunur strax að stúlku á átjánda ári og var hún handtekin. Hún játaði en gat þó ekki gefið neina skýringu á athæfinu. Að lokinni yfirheyrslu var hún látin laus. Var barnaverndaryfirvöldum á Akureyri jafnframt tilkynnt um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert