Stærstu kornakrarnir í Melasveit

Kornbændur eru að sá þessa dagana og hafa notið góðs …
Kornbændur eru að sá þessa dagana og hafa notið góðs tíðarfars við vorverkin. Starfsmenn Stjörnugríss í Melasveit voru að sá í akra á jörðinni Ási. mbl.is/Helgi Bjarnason

Stærstu kornakrar landsins í ár eru á búi Stjörnugríss í Melasveit. Þar er sáð í allt að 270 hektara.

Ef sumarið verður gott má búast við að það skili 600 til 1.000 tonnum af korni á haustmánuðum. Uppskeran verður öll notuð til að fóðra svínin.

Aðeins hefur dregið úr áhuga á kornrækt vegna uppskerubrests sem varð um allt land vegna óhagstæðs tíðarfars á síðasta ári. Einhverjir bændur hafa þó endurskoðað áform sín vegna góðra skilyrða til sáningar í vor, að því er fram kemur í umfjöllun um horfur í kornrækt í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert