Hinar eldflaugarnar tvær eru komnar í leitirnar

Ein af eldflaugunum þremur sem skotið var upp á fimmtudag.
Ein af eldflaugunum þremur sem skotið var upp á fimmtudag. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Allar eldflaugarnar þrjár, sem hópur meistaranema í verkfræði við Háskólann í Reykjavík skaut á loft á Mýrdalssandi á fimmtudag, eru nú komnar í leitirnar.

Að sögn Ívars Kristinssonar, eins úr hópnum, var flogið yfir svæðið í gær og fundust þá tvær flauganna í grennd við skotstaðinn. Önnur af stærri flaugunum tveimur sem skotið var á loft fannst strax á fimmtudaginn.

Næsta skref verður að sækja flaugarnar og segist Ívar gera ráð fyrir að hópurinn geri sér ferð austur á morgun til þess. Það lítur þó út fyrir að önnur af stærri flaugunum sé mikið skemmd.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert