Lýsa eftir stolnum jeppa

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir jeppabifreið af gerðinni Nissan Patrol sem stolið var úr bílastæðahúsi í Hafnarfirði í færslu á Facebook síðu sinni í dag. Um er að ræða gráan jeppa með númerið UA-011, en lögreglan biður þá sem verða varir við ferðir bílsins um að hafa samband til þess að hann komist í réttar hendur sem fyrst.

Um er að ræða Nissan Patrol með númerið UA-011
Um er að ræða Nissan Patrol með númerið UA-011 Ljósmynd af Facebook síðu lögreglunnar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert