Árekstur á Ólafsfjarðarvegi

mbl.is/Hjörtur

Árekstur tveggja bíla varð nú í kvöld á Ólafsfjarðarvegi hjá Selárbakka við Dalvík. Fjórir eru slasaðir og voru fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri. Loka þurfti veginum tímabundið á meðan lögreglan sinnti störfum sínum. 

Ekki er vitað hversu alvarleg meiðslin eru. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert