Foreldrar sóttu farþegana

mbl.is/Hjörtur

Lögregla höfuðborgarsvæðisins stöðvaði akstur 19 ára pilts á Vesturlandsvegi á móts við Suðurlandsveg á tólfta tímanum í gærkvöldi eftir að bifreið hans mældist á 164 km hraða, en þar er 80 km hámarkshraði. Foreldrar voru fengnir til að sækja farþega bílsins, vegna ungs aldurs þeirra.

Pilturinn, sem var allsgáður, var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða á staðnum. Í bílnum voru þrír farþegar, allir 17 ára. Haft var samband við forráðamenn þeirra sem komu á vettvang og sóttu farþegana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert