Veltu bílnum í brúðkaupsferðinni

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Par varð fyrir því óhappi í gærkvöldi að velta bifreið sinni á Uxahryggjaleið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi misstu þau stjórn á bifreiðinni en um malarveg er að ræða. 

Um er að ræða erlent par sem er í brúðkaupsferðalagi um Ísland. Lögreglan fór með þau til skoðunar á heilsugæsluna í Borgarnesi og ók þeim síðan til Reykjavíkur. Bifreiðin er óökufær og þurfti að flytja hana með dráttarbifreið af slysstað. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert