Tveir í haldi vegna líkamsárásar

mbl.is/Sigurður Bogi

Tveir gista fangaklefa lögreglunnar á Akureyri eftir líkamsárás á veitingastað í bænum í nótt. Fórnarlambið þurfti leita sér læknisaðstoðar en hann skarst í andliti í árásinni og er með töluvert mikla áverka. Árásarmennirnir verða yfirheyrðir síðar í dag vegna málsins.

Að sögn lögreglu var töluverður erill á Akureyri í gærkvöldi og nótt og mikil ölvun í bænum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert